20. nóvember 2023

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2023

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2023 verður haldinn miðvikudaginn 29. nóvember í Hörpu kl. 13:00-15:00 undir yfirskriftinni Á rauðu ljósi?  

Dagurinn í ár er tileinkaður Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem afhentir voru Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á vormánuðum. Þar komu fram 332 tillögur að aðgerðum sem eiga að stuðla að auknum samdrætti í losun atvinnugreinanna.

Dagskrá lýkur með hinum árlegu Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir. Tengslamyndun tekur svo við milli 15:00 – 16:00.

Dagskrá

Setning
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Orkuframleiðsla og aðgengi að orku

Kynning á stöðunni og umræður

  • Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, stýrir umræðum
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar IS
  • Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
  • Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar H2
Einföldun regluverks

Kynning á stöðunni og umræður

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, stýrir umræðum
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Dr. Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix
  • Bogi Nils, forstjóri Icelandair
  • Álfheiður Ágústdóttir, forstjóri Elkem Ísland og leiðtogi vegvísis um kísiliðnað
  • Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá Landsbankanum
Fjárhagslegir hvatar til fjárfestinga

Kynning á stöðunni og umræður

  • Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, stýrir umræðum
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra
  • Björn Ingi Viktorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
  • Guðmundur Kristjánsson, forstjóri BRIM
Innviðauppbygging

Kynning á stöðunni og umræður

  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, stýrir umræðum
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Agla Huld Þórarinsdóttir, yfirmaður sjálfbærnimála Eimskips
  • Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborg og leiðtogi vegvísis um vegasamgöngur
  • Svandís Hlín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landseti
Lokaerindi

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2023

Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SFS, SAF, Samorku, SFF, SI og SVÞ.

Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur nóvembermánuður eyrnamerktur umhverfismálum með áherslu á loftslagsmál. 

Skráðu þig í áhorf hér  á streymisþætti á þriðjudögum og fimmtudögum í nóvembermánuði.